Stjórnfríður bloggar
af sauðum og mönnum.....
sem að mestu búið þetta matarpjakk,mikið hakkað og saxað og feitir
fínir sauðir komnir í pækil fyrir reykinn....Og manni er sko létt
,því þetta er mikil vinna...Ég hafði mikla og góða hjálp þar sem
þeir voru tengdasonur minn og hann Ingþór og Inga sá um matargrðina
á lau.var elduð þessi fína gúllassúpa í liðið...Þeim félögum Bjarka
degi ljómandi gott,þeir fegu 6 stk. af þeim 12 sem sáust.....það er
orin fönn uppi svo enginn fugl fæst þar í hagleysi....Svo var
hjálpast að við það á sun. að reka inn fé,því nú mega hrútar ekki
ganga lausir úr þessu,trúlega tökum við lömb á hús einnig,því veður
eru mjög risjótt þetta haustið sem oft áður....Mér fynnst tíminn
líða hratt þessa dagana ,skrítið en það er eins og hann herði
alltaf á ser....Kem inn með færlslu síðar,takk,takk fyrir öll fínu
commentin ykkar,,líði ykkur vel sem á þessa síðu kíkjið.....
hratt líður stund....
kringum mig og mína,jú helst frétta að Inga er byrjuð að vinna 1/2
daginn og er að vonum kát með það....Hjá mér er þetta nú þessi
rútína ,vinna ,sofa borða og lítið umfram það.sigurjón kallinn
búinn að vera lasinn heima,hefur sjálfsagt fengið niðurslátt vegna
þessa bjásturs við slátrunina á síðustu helgi,þetta er óþverrapest
og þarf að vara sig á henni,ég er engan vegin búin að jafna mig
enn.....Nú er líf og fjör í framboðsmálum landans ,margt er
greynilega ekki sem sýnist en það er nú svo sem ekki neitt
nýtt...'eg er mjög spennt orðin að vita hvernig Framsókn gömlu mun
reiða af í mínu kjördæmi, þar nefnilega ganga menn umvörpum í
flokkinn og erfitt að ráða í hvað það þýðir...ef eitthvert vit er
til staðar hjá mönnum,held ég að þeir ættu að koma sleggjunni í
fyrsta sæti þarna,svo er að bíða og sjá hversu kjarkaðir menn
eru.!Asskot fannst mér hún köld kveðjan frá borginni til eldri
lítið tilhlakk að verða gamalmemmi nú til dags....En kannski skánar
þetta .....LÆt í mér heyra ef eitthvað gerist bitastætt.....Líði
illu best aflokið........
leiðindadæmi lokið sem er þessi blessuð heimaförgun,alltaf þungu
fargi af öllum þeim er að því koma létt þegar afstaðið er...Þeir
voru duglegir við þetta blessaðir mennirnir eins og ævinlega, ég
gerðist hins vegar svo löt að minn hlutur fór í gáminn til geymslu
næstu viku...annars hangir það á spýtunni hjá mér að reyna að vinna
úr ærkj. sem mest heima næsta lau.ég hef svo lítið frystipláss hér
í Reykjavíkurhreppi......Tókum reyndar ekkert suður nema
krakkakjötið eins og pabbi sagði hér í denn....Var leiðinlegt að
í dag,það er sykursýkin að hrekkja hana,ég vona að þeir þarna á
Borgarspítalanum kippi þessu fljótt í liðinn.....Þá eru
prófkjörskosningar yfirstaðnar hjá íhaldinu,það er nú held ég hið
besta mál fyrir xD,þessi úrslit,kominn tími á nýtt blóð þarna...Við
fengum fréttir af fráfalli gamals vinar um helgina .Hann er dáinn
hann Einar hennar Huldu minnar,æ já það týnist á braut þetta
blessað vinafolk foreldra minna...svona er þetta...Jæja elskur
látið ykkur líða vel eftir föngum...Óla segir bless í bili.....
ys og þys.....
mitt stutta blogg á að þakka ykkur elskurnar fyrir kveðjurnar þann
24 s.l.Slíkt yljar hverju hjarta !!!Af mér er allt þetta svipað að
frétta,í morgun var ég vöknuð kl.rúmlega 6,mætti 8 í vinnu og mun
gera það á morgun einnig,kvíði mjög fyrir að sitja í bílnum norður
á morgun fyrir þær sakir,því ég er að sálast í bakinu þegar ég mæti
svona snemma greyjið...en sonna er etta bara...allt var vitlaust að
gera í dag,raunar fynnst mér svona ys og þys um allt þessa daga og
ótrúlegt að verslanir skulu vera farnar að gera út á þessi blessuð
jól,þau missa sinn sjarma vegna allra þessara láta,en maður reynir
að halda ró sinni og láta þessi ósköp trufla sig sem minnst....Nú
er umheimurinn að ærast vegna þessara hvalveiða okkar,maður veit
ekki hvort beri ´ð hlæja eða gráta þessi ósköp..í það minnsta er
þetta andstyggilegur tvískinnungsháttur þjóða sem standa í því
seint og snemma að drepa börn hér og hvar um hnöttinn og pína
skepnur í búrum hér og hvar, æ já.......Ég ætla að standa upp frá
tölvunni núna og reyna að gera eitthvað af viti meðan ég nenni,læt
heyra af mínum ferðum eftir helgi,þar til farið vel með
ykkur......og sæl að sinni.....
kuldaboli bankar á dyr.....
góða,nú er bara að draga fra húfu,trefil og vettlinga ...og gamla
góða vaselínið,það er nefnilega ekkert meðal betra á
kuldafrunsurnar en akkúrat það!Svo er gráupplagt er degi fer að
halla að kveikja mörg,mörg kertaljós,þau ylja utan jafnt sem
innan....Þau sóttu ömmu í vinnuna í dag Ingóli og Inga,björguðu
henni frá honum kuldabola,þau komu með rósir og gjöf og kossa fyrir
gömlu,þau stoppuðu góða stund.....Svo fékk ég góða gesti í
kvöld,takk Ásta mín og gormur fyrir komuna og ykkar
rausnarskap....Heyrði í Sigga Óla í dag, nú gustar kalt heima,er
snjóþekja á jörð og vetrarlegt....Annars allt við sama
hér....kannski meira síðar og Haddý mín takk,takk fyrir kveðjuna í
kvöld...hafið það öll sem best í bráð og lengd.....
húsið með rauða þakinu.....
fætur annarri og mér fynnst þar stuttar,því það er eins og alltaf
standi eitthvað út af hjá manni,þrátt virir endalausar annir.Nú eru
um helgina sem og fé sem unnið verður á næstu helgi.Ég gekk frá
skrokkunum úr gáminum á sun.er svakalega fínt að láta þetta meirna
svona í rólegheitunum.Bróðir minn tók frá sínar fáu ær sem hann
ætlar að eiga í vetur,við vorum í húsunum allann lau. og fram yfir
hádegið á lau....Eftir hálfan mán. ætti nú að fara að róast í þessu
fargani hjá okkur...Við komumst ekki af stað að norðan fyrr en svo
seint að við misstum af skírninni hans Kristjáns litla Reynis,sem
er mjög leiðinlegt að sjálfsögðu..þau komu nú blessuð til okkar í
dag með nyskírða drenginn sinn og kökusmakk Elísa og Doddi,sigurjón
I. og Steini með þeim,takk elskur fallegt af ykkur! Hann er orðinn
svo stór og myndarlegur strákur hann Kristján R þau stækka svo ört
á þessu skeiði börnin......Ég er alltaf með einhvern
flensuskít.gengur illa að losna við þetta,enda trúlega á
lyfjakúr,það er líka alltaf svo kalt að maður má passa sig.....Vona
að ykkur er þetta lesið ,líð barasta sem best....guð gæti ykkar
elskur...
sjálfstæð þjóð.....
um 12 leytið með las...Hef unnið með hálsbólgu og hita frá helgi og
ákvað að nú væri þetta ágætt,ætla að reyna að lúra þetta úr mer í
dag...Þá er nú sú stund upprunnin að hafnar eru hvalveiðar á ný
,eftir margra ára stopp,þetta er að sjálfsögðu hið besta mál og
löngu tímabært..nú finnur maður sannarlega til
þjóðarstoltsins,herinn á burt og hvalurinn veiddur á ný ,flott.Það
er náttúrlega ekki vafi að fiskveiðar okkar hafa verið rýrari vegna
þessarar hvalafriðunar undanfarin ár,því lífkeðjan raskast að
sjálfsögðu....Hér til mín komu í gær góðir gestir Jón frændi og
Dídí ásamt Ástu,snæddum við steikta bleikju úr Tunguá og var gamli
maðurinn glaður yfir því..hann er annars orinn ósköp lélegur til
heilsunnar,en þetta var afar velheppnað kvöld.....Nú eru morgnarnir
kaldir,greinilega frost í nótt,en svona haustdagar eru yndislega
fallegir,er sólin skín...ég pára meira seinna ef þannig liggur á
mér...bestu kv. til ykkar sem þetta lesið, úr Árbænum........
villa....
sveitinni.Það þarf náttúrlega ekki að taka það fram að er menn
ætluðu að reyna að smala brast á með hávestan roki og regni,svo
smöluð voru tún og ls.14 lömbum og 19 gamalám fyrir
jörðina....Lambsskrokkar síðan hengdir upp í gám til
meyrnunnar,þannig verður þetta best,ekki síst í þeim kulda sem
verður út vikuna,takk kæru vinir fyrir hjálpina þessa helgi.....Svo
var náttúrlega fyrsti í rjúpu á sun.. og mættu 6 karlar og 1 kona á
fjöll en því miður gekk í norðan slagveður undir morgunn á s.svo
lítið var að hafa annað en vosbúð,veiddust bara 4 fuglar!Svo
villtist einn í þokunni en komst af sjálfsdáðum frá þeim
voða,óskaddaður guði sé lof,það var svo kalt ,snjóaði uppi...Við
fórum laxárdalsh. og Brekkuna í bæinn því Holtavörðuheiðin var
orðin svo tvísýn,allt gekk vel....ég vona að þið sem þetta lesið
séuð öll spræk,,skrifa meira síðar,bless þar til!!
vetrarkvíði.....
eins og komandi vetur minni á sig....Snjóað hefir norðanlands og
austan og jafnvel verið erfitt í umferðinni af þeim sökum....Þetta
þarf þó ekki að þýða að vetur sé sestur að völdum hjá okkur,er í
raun ósköp eðlilegt á þessum árstíma...Mér líst ekki meir en svo á
byrjun í rjúpnaveiðinni heima.Þetta er afleitt ef fer eftir spá ,að
gangi í norðanátt á sun.Þá er ekki fugla von,fara allir suður af en
það er bara miðvikudagur ,svo það getur breyst fram til helgar...Nú
eru öll mín lömb sem komin voru ,gengin sinn veg utan 2o sem tekin
voru til lífs,svo er að vita hvort fé ekki skilar sér nú er
kólnar,oft er það nú þannig.Það er verra að eiga eftir þetta
heimaförgunarstúss,þarf þó að drýfa í því ef kólna fer .Hér hjá
okkur er allt í sama,svona líkt og hjá öðrum.Sigurjón er buinn að
vera með hálsbólgu og hálf slappur,hefur þó mætt til vinnu, hjá mér
er sama fjörið í vinnunni eykst alltaf ,en þetta er orðið léttara
eftir að við fengum nýjann flottann ofn...Inga og Ingóli voru hjá
í vindinum,en ég held nú að ég sé fastari fyrir en svo að þetta
feyki mér langt .Segi ykkur fréttir síðar ef einhverjar eru.Þar til
ja þetta mjakast......
norðan..Smalað var fyrir utan á lau. og ég gat bara verið í þvotti
og þrifum á meðan þvi Maggi frændi á Þambárvöllum smalaði með
þeim,hann fór uppfjallið á sexhjóli og var þannig á við 3
menn!!Þetta var fínt,alltaf best að stússa við þrif þegar karlar og
börn eru úti við...Á sun. komu svo þau frá Borðeyri og við náðum fé
sem var nærri bæ .utan girðingar og svo var farið í að taka frá.Það
reyttist talsvert af fé heim og náði ég að srenda frá mér 183
stk.Enn vantar þó um 5o ....En sem sagt allt gekk vel og búið var
upp úr miðjum degi svo við náðum nanast að keyra í björtu í
bæinn,enda vaknað mjög snemma til verka á sun.....Dagurinn í dag
var svo týpiskur vinnudagur,nóg að gera og ég snemma búin.Þau sóttu
mig síðan Inga og snúður,hann alveg rígmontinn í blikkandi
strigaskóm,þau stoppuu svo hjá mér smástund og hann hjálpaði ömmu
að taka til!!!! Svo leit Þórir spánarfari inn svartur af sól og
glaður með ferðina og endurfundina við sitt fólk að
sjálfsögðu.....Ég vona að þið öll sem þettað lesið séuð glöð og
hress ,pára máski eitthvað síðar ef andinn skellur yfir
glaður í hjarta.....
breytast með árunum ,hef nú eins og margir fleiri þessa innbyggðu
klukku sem vekur mann akkúrat þessum kl.tíma fyrir vinnu og
þ.h...Síðustu vikur hef ég hins vegar verið vakin á slaginu átta
við hamarshögg ,sem undir er sungið ,glöðum rómi hin skemmtilegustu
lög með textum sem ég í mínum heimóttarskap,kann engin skil á.Hef
komist að því að þessi elskulegi morgunhani er pólskur drengur sem
endurbyggir skúr nágranna míns..Það eru allir að byggja svo
sem..það sem mér fynnst hins vegar svo smart er þessi mikla
vinnugleði sem snáðinn hefur til að bera.Þótt rigni og
vinnudagurinn fari allt í 12 tíma þá syngur hann samt!Þetta gleður
mitt gamla hjarta því maður man tímana tvenna í sveitinni í gamla
daga...Af okkur hér í Árbænum er annars allt þetta sama,ég á að
senda lömb í hús eftir helgi svo enn þarf maður að leika manninn
með ljáinn!!Allt klikkað í vinnunni og sem sagt sami grautur í
sömuskál.....Vona að þið sem lesið séuð öll nokkuð góð
einkennilegt manni....
sinni og alveg er´það einkennilegt að himnafaðirinn skuli láta
þetta yfir okkur ganga þar norður frá,blindaþoka líkt og í fyrri
leit.Raunar fóru ekki aðrir á fjall en mitt duglega fólk og mesta
furða hvað niður kom af fé....Bestu þakkir oll somul án ykkar væri
ég ekki upp á marga fiska...það er náttúrlega ómetanlegt að eiga
þvílíkt fólk að...Ég hef annars verið lot að blogga,það er nú allt
mér kalt og haustlegt,enda að verða áliðið garðurinn og gangstétin
hér er þakið fallandi laufbloðum,berin frosin og fuglarnir farnir
að sníkja brauð...þetta er nú svona ,hver árstíð fylgir annarri
eftir,já og nú er herinn farinn,einungis einmana kakkalakkar og
ruslið eftir,við eigum það til minningar þó alltaf!!Annars vona ég
að bjorgunarþyrlumál leysist fljótt og vel,sjómennirnir okkar þurfa
á því að halda því senn fer vetur í hond með rysjóttri tíð.....segi
kátir í sinni......
og aldrei það kemur til baka.....
hofum helst ekki viljað hugsa um,en hvað um það ,nú erþetta allt að
gerast,í þessu máli mun græðgin og skammsýnin ráða ferðinni eins og
svo mjog tíðkast nú um stundir...Get ekki að því gert að leiða
hugann a´því stundum ,hvort þetta s´e yfir hofuð í valdi þeirra sem
nú sitja við vold...Málið er að allt undir sólinni sem lífsanda
dregur á sinn tíma og deyr og að lokum...en jorðin er margra
kynslóða...svo þetta skemmdarverk er það sem við gefum bornum
okkar,barnabornum,barnabarna ...osfrv!!!OG ég held að alveg hafi
gleymst að fá leyfi þeirra fyrir þessum frantíðarspjollum1!Já
elskur mér er heitt í hamsi..annars allt gott hér á bæ,ÓLa undirbýr
norðurferð á morgun,heyrði að norðan í dag ,fúlt veður þv´i er ver
en gestirnir mínir Ella og Halli sátu þar í sús og dús með
heimamonnum....kannski smá blogg á morgun fyrir brottferð...blessi
ykkur þar til...
að flytja fjoll...
gonguna miklu niður Laugaveg,fannst ég alveg vera lúserinn ever að
vera ekki þarna..Mjog merkilegt að fylgjast með þessari ferð Ómars
gegn um allt þetta Kárahnújkamál..Þarna fer nefnilega maður sem er
búin er að stunda afar vísindalegar rannsóknir ,í byrjun sem
blaðamaður og síðar af sínum alkunna áhuga sem maðurinn Ómar.Það er
svo sem ekkert leindarmál að ég hef verið og er gersamlaga andsnúin
þessari virkjun og tek því sannarlega með fognuði undir boðskap
þessarar gongu og tek svo sannarlega ofan minn hatt fyrir
Ómari....Hjá okkur var dagurinn svipaður bræðrum sínum er áður
runnu hjá,Inga mín og snúður sóttu mig til vinnu og heim komin fór
ég að búa smá í haginn fyrir komandi helgi,því nú skal reyna að
smala vel í seinni leit...Spáð er kólnnandi,máski fennir í fjoll og
þá léttir á fjallaklifri hjá monnum...Kem inn ef eitthvaðsniðugt
gerist hjá Ólu og co...Þar til góðar kv. úr Árbænum...
að vera eða vera ekki.....
fylgir nokkur ábyrgð ég man þá tíð að ég ..og orugglega margir
kom nú svo sem fyrir að skrifaðar voru hugrenningar sem ekki voru
ætlaðar oðrum,enda voru þessi skrif mín fyeie sjálfa mig.Hins vegar
er það svo með blessaðar bloggsíðurna að séu þær ekki læstar ,þá
getur hver sem er lesið ...Það hlýtur þess vegna að vera einfalt að
það sem folk ritar sé það sem í huga og hjarta býr og það sem ALLIR
eiga að sjá!!Ekki meira um það...Af okkur er allt gott,mikil vinna
á minni vegna veikinda á mínum vinnustað,ég er eins og orugglega
allir aðrir gloð yfir þessari blíðu sem ríkt hefur að
undanfornu,sannarlegur sumarauki það.Norðan að er allt gott,nú fá
mínir kallar sennilega heimsókn á morgun og verð glaðir yfir því
,aðsjálfsogðu...Ég óska gestunum vitanlega góðrar ferðar og
notalegrar dvalar,ég vona svo að þið sem þessa færslu lesið séuð
barasta undurhress og ´fín....góða nótt vinir mínir...