Stjórnfríður bloggar
06.11.2006 16:10:25 / olamey

af sauðum og mönnum.....

þá er lokið mikilli vinnu þar norður á Ströndum þessa helgina,svo sem að mestu búið þetta matarpjakk,mikið hakkað og saxað og feitir fínir sauðir komnir í pækil fyrir reykinn....Og manni er sko létt ,því þetta er mikil vinna...Ég hafði mikla og góða hjálp þar sem þeir voru tengdasonur minn og hann Ingþór og Inga sá um matargrðina á lau.var elduð þessi fína gúllassúpa í liðið...Þeim félögum Bjarka og Jenna gekk þokkalega í  rjúpunni á lau,enda veður framan af degi ljómandi gott,þeir fegu 6 stk. af þeim 12 sem sáust.....það er orin fönn uppi svo enginn fugl fæst þar í hagleysi....Svo var hjálpast að við það á sun. að reka inn fé,því nú mega hrútar ekki ganga lausir úr þessu,trúlega tökum við lömb á hús einnig,því veður eru mjög risjótt þetta haustið sem oft áður....Mér fynnst tíminn líða hratt þessa dagana ,skrítið en það er eins og hann herði alltaf á ser....Kem inn með færlslu síðar,takk,takk fyrir öll fínu commentin ykkar,,líði ykkur vel sem á þessa síðu kíkjið.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 18:57:57 / olamey

hratt líður stund....

Halló þið sem flakkið um Bloggland!!Smá færsla þótt fátt gerist í kringum mig og mína,jú helst frétta að Inga er byrjuð að vinna 1/2 daginn og er að vonum kát með það....Hjá mér er þetta nú þessi rútína ,vinna ,sofa borða og lítið umfram það.sigurjón kallinn búinn að vera lasinn heima,hefur sjálfsagt fengið niðurslátt vegna þessa bjásturs við slátrunina á síðustu helgi,þetta er óþverrapest og þarf að vara sig á henni,ég er engan vegin búin að jafna mig enn.....Nú er líf og fjör í framboðsmálum landans ,margt er greynilega ekki sem sýnist en það er nú svo sem ekki neitt nýtt...'eg er mjög spennt orðin að vita hvernig Framsókn gömlu mun reiða af í mínu kjördæmi, þar nefnilega ganga menn umvörpum í flokkinn og erfitt að ráða í hvað það þýðir...ef eitthvert vit er til staðar hjá mönnum,held ég að þeir ættu að koma sleggjunni í fyrsta sæti þarna,svo er að bíða og sjá hversu kjarkaðir menn eru.!Asskot fannst mér hún köld kveðjan frá borginni til eldri borgarana nú ,tek undir méð Þórhildi Þorleifs.um að það sé lítið tilhlakk að verða gamalmemmi nú til dags....En kannski skánar þetta .....LÆt í mér heyra ef eitthvað gerist bitastætt.....Líði ykkur barasta vel ævinlega !!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 18:43:44 / olamey

illu best aflokið........

Sælt veri fólkið á þessu dimma mánudagskvöldi!!Þá er því leiðindadæmi lokið sem er þessi blessuð heimaförgun,alltaf þungu fargi af öllum þeim er að því koma létt þegar afstaðið er...Þeir voru duglegir við þetta blessaðir mennirnir eins og ævinlega, ég gerðist hins vegar svo löt að minn hlutur fór í gáminn til geymslu næstu viku...annars hangir það á spýtunni hjá mér að reyna að vinna úr ærkj. sem mest heima næsta lau.ég hef svo lítið frystipláss hér í Reykjavíkurhreppi......Tókum reyndar ekkert suður nema krakkakjötið eins og pabbi sagði hér í denn....Var leiðinlegt að Ásta mín var svo lasin þarna hjá  okkur,var lögð inn á spítala í dag,það er sykursýkin að hrekkja hana,ég vona að þeir þarna á Borgarspítalanum kippi þessu fljótt í liðinn.....Þá eru prófkjörskosningar yfirstaðnar hjá íhaldinu,það er nú held ég hið besta mál fyrir xD,þessi úrslit,kominn tími á nýtt blóð þarna...Við fengum fréttir af fráfalli gamals vinar um helgina .Hann er dáinn hann Einar hennar Huldu minnar,æ já það týnist á braut þetta blessað vinafolk foreldra minna...svona er þetta...Jæja elskur látið ykkur líða vel eftir föngum...Óla segir bless í bili.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 17:31:18 / olamey

ys og þys.....

Góðan dag öll þarna úti!!!Á þessum hráslagalega degi,vil ég byrja mitt stutta blogg á að þakka ykkur elskurnar fyrir kveðjurnar þann 24 s.l.Slíkt yljar hverju hjarta !!!Af mér er allt þetta svipað að frétta,í morgun var ég vöknuð kl.rúmlega 6,mætti 8 í vinnu og mun gera það á morgun einnig,kvíði mjög fyrir að sitja í bílnum norður á morgun fyrir þær sakir,því ég er að sálast í bakinu þegar ég mæti svona snemma greyjið...en sonna er etta bara...allt var vitlaust að gera í dag,raunar fynnst mér svona ys og þys um allt þessa daga og ótrúlegt að verslanir skulu vera farnar að gera út á þessi blessuð jól,þau missa sinn sjarma vegna allra þessara láta,en maður reynir að halda ró sinni og láta þessi ósköp trufla sig sem minnst....Nú er umheimurinn að ærast vegna þessara hvalveiða okkar,maður veit ekki hvort beri ´ð hlæja eða gráta þessi ósköp..í það minnsta er þetta andstyggilegur tvískinnungsháttur þjóða sem standa í því seint og snemma að drepa börn hér og hvar um hnöttinn og pína skepnur í búrum hér og hvar, æ já.......Ég ætla að standa upp frá tölvunni núna og reyna að gera eitthvað af viti meðan ég nenni,læt heyra af mínum ferðum eftir helgi,þar til farið vel með ykkur......og sæl að sinni.....

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 20:31:49 / olamey

kuldaboli bankar á dyr.....

Jámm nú er hann kaldur úti manni...en þetta er nú Íslandið okkar góða,nú er bara að draga fra húfu,trefil og vettlinga ...og gamla góða vaselínið,það er nefnilega ekkert meðal betra á kuldafrunsurnar en akkúrat það!Svo er gráupplagt er degi fer að halla að kveikja mörg,mörg kertaljós,þau ylja utan jafnt sem innan....Þau sóttu ömmu í vinnuna í dag Ingóli og Inga,björguðu henni frá honum kuldabola,þau komu með rósir og gjöf og kossa fyrir gömlu,þau stoppuðu góða stund.....Svo fékk ég góða gesti í kvöld,takk Ásta mín og gormur fyrir komuna og ykkar rausnarskap....Heyrði í Sigga Óla í dag, nú gustar kalt heima,er snjóþekja á jörð og vetrarlegt....Annars allt við sama hér....kannski meira síðar og Haddý mín takk,takk fyrir kveðjuna í kvöld...hafið það öll sem best í bráð og lengd.....

» 6 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 20:05:15 / olamey

húsið með rauða þakinu.....

Gott mánudagskvöld góðir hálsar!!Já það fljúga vikurnar ,hver á fætur annarri og mér fynnst þar stuttar,því það er eins og alltaf standi eitthvað út af hjá manni,þrátt virir endalausar annir.Nú eru öll mín lömb farin  í húsið með rauða þakinu,tókum við það frá um helgina sem og fé sem unnið verður á næstu helgi.Ég gekk frá skrokkunum úr gáminum á sun.er svakalega fínt að láta þetta meirna svona í rólegheitunum.Bróðir minn tók frá sínar fáu ær sem hann ætlar að eiga í vetur,við vorum í húsunum allann lau. og fram yfir hádegið á lau....Eftir hálfan mán. ætti nú að fara að róast í þessu fargani hjá okkur...Við komumst ekki af stað að norðan fyrr en svo seint að við misstum af skírninni hans Kristjáns litla Reynis,sem er mjög leiðinlegt að sjálfsögðu..þau komu nú blessuð til okkar í dag með nyskírða drenginn sinn og kökusmakk Elísa og Doddi,sigurjón I. og Steini með þeim,takk elskur fallegt af ykkur! Hann er orðinn svo stór og myndarlegur strákur hann Kristján R þau stækka svo ört á þessu skeiði börnin......Ég er alltaf með einhvern flensuskít.gengur illa að losna við þetta,enda trúlega á lyfjakúr,það er líka alltaf svo kalt að maður má passa sig.....Vona að ykkur er þetta lesið ,líð barasta sem best....guð gæti ykkar elskur...

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 14:15:54 / olamey

sjálfstæð þjóð.....

Góðan dag öll sömul,smá blogg í leti minni,en ég kom heim úr vinnu um 12 leytið með las...Hef unnið með hálsbólgu og hita frá helgi og ákvað að nú væri þetta ágætt,ætla að reyna að lúra þetta úr mer í dag...Þá er nú sú stund upprunnin að hafnar eru hvalveiðar á ný ,eftir margra ára stopp,þetta er að sjálfsögðu hið besta mál og löngu tímabært..nú finnur maður sannarlega til þjóðarstoltsins,herinn á burt og hvalurinn veiddur á ný ,flott.Það er náttúrlega ekki vafi að fiskveiðar okkar hafa verið rýrari vegna þessarar hvalafriðunar undanfarin ár,því lífkeðjan raskast að sjálfsögðu....Hér til mín komu í gær góðir gestir Jón frændi og Dídí ásamt Ástu,snæddum við steikta bleikju úr Tunguá og var gamli maðurinn glaður yfir því..hann er annars orinn ósköp lélegur til heilsunnar,en þetta var afar velheppnað kvöld.....Nú eru morgnarnir kaldir,greinilega frost í nótt,en svona haustdagar eru yndislega fallegir,er sólin skín...ég pára meira seinna ef þannig liggur á mér...bestu kv. til ykkar sem þetta lesið, úr Árbænum........

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 15:03:27 / olamey

villa....

Hana nú þá er enn kominn mánudagur eftir annasama helgi í sveitinni.Það þarf náttúrlega ekki að taka það fram að er menn ætluðu að reyna að smala brast á með hávestan roki og regni,svo smöluð voru tún og ls.14 lömbum og 19 gamalám fyrir jörðina....Lambsskrokkar síðan hengdir upp í gám til meyrnunnar,þannig verður þetta best,ekki síst í þeim kulda sem verður út vikuna,takk kæru vinir fyrir hjálpina þessa helgi.....Svo var náttúrlega fyrsti í rjúpu á sun.. og mættu 6 karlar og 1 kona á fjöll en því miður gekk í norðan slagveður undir morgunn á s.svo lítið var að hafa annað en vosbúð,veiddust bara 4 fuglar!Svo villtist einn í þokunni en komst af sjálfsdáðum frá þeim voða,óskaddaður guði sé lof,það var svo kalt ,snjóaði uppi...Við fórum laxárdalsh. og Brekkuna í bæinn því Holtavörðuheiðin var orðin svo tvísýn,allt gekk vel....ég vona að þið sem þetta lesið séuð öll spræk,,skrifa meira síðar,bless þar til!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 18:02:25 / olamey

vetrarkvíði.....

Já kæru vinir sem þetta lesið,nú gustar um gáttir svona dálítið eins og komandi vetur minni á sig....Snjóað hefir norðanlands og austan og jafnvel verið erfitt í umferðinni af þeim sökum....Þetta þarf þó ekki að þýða að vetur sé sestur að völdum hjá okkur,er í raun ósköp eðlilegt á þessum árstíma...Mér líst ekki meir en svo á byrjun í rjúpnaveiðinni heima.Þetta er afleitt ef fer eftir spá ,að gangi í norðanátt á sun.Þá er ekki fugla von,fara allir suður af en það er bara miðvikudagur ,svo það getur breyst fram til helgar...Nú eru öll mín lömb sem komin voru ,gengin sinn veg utan 2o sem tekin voru til lífs,svo er að vita hvort fé ekki skilar sér nú er kólnar,oft er það nú þannig.Það er verra að eiga eftir þetta heimaförgunarstúss,þarf þó að drýfa í því ef kólna fer .Hér hjá okkur er allt í sama,svona líkt og hjá öðrum.Sigurjón er buinn að vera með hálsbólgu og hálf slappur,hefur þó mætt til vinnu, hjá mér er sama fjörið í vinnunni eykst alltaf ,en þetta er orðið léttara eftir að við fengum nýjann flottann ofn...Inga og Ingóli voru hjá mér í dag,þau sóttu mig til  vinnu,vorkenndu mér að baksa heim í vindinum,en ég held nú að ég sé fastari fyrir en svo að þetta feyki mér langt .Segi ykkur fréttir síðar ef einhverjar eru.Þar til gangið öll á guðs vegum.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 20:52:31 / olamey

ja þetta mjakast......

Jamm helgin að baki og hafin ný vika...Okkur gekk vel vinnan fyrir norðan..Smalað var fyrir utan á lau. og ég gat bara verið í þvotti og þrifum á meðan þvi Maggi frændi á Þambárvöllum smalaði með þeim,hann fór uppfjallið á sexhjóli og var þannig á við 3 menn!!Þetta var fínt,alltaf best að stússa við þrif þegar karlar og börn eru úti við...Á sun. komu svo þau frá Borðeyri og við náðum fé sem var nærri bæ .utan girðingar og svo var farið í að taka frá.Það reyttist talsvert af fé heim og náði ég að srenda frá mér 183 stk.Enn vantar þó um 5o ....En sem sagt allt gekk vel og búið var upp úr miðjum degi svo við náðum nanast að keyra í björtu í bæinn,enda vaknað mjög snemma til verka á sun.....Dagurinn í dag var svo týpiskur vinnudagur,nóg að gera og ég snemma búin.Þau sóttu mig síðan Inga og snúður,hann alveg rígmontinn í blikkandi strigaskóm,þau stoppuu svo hjá mér smástund og hann hjálpaði ömmu að taka til!!!! Svo leit Þórir spánarfari inn svartur af sól og glaður með ferðina og endurfundina við sitt fólk að sjálfsögðu.....Ég vona að þið öll sem þettað lesið séuð glöð og hress ,pára máski eitthvað síðar ef andinn skellur yfir mig...þar  til adios öll sömul....

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 18:57:51 / olamey

glaður í hjarta.....

Oftast fynnst mér allt of gott að sofa á morgnanna,en þó dálítið að breytast með árunum ,hef nú eins og margir fleiri þessa innbyggðu klukku sem vekur mann akkúrat þessum kl.tíma fyrir vinnu og þ.h...Síðustu vikur hef ég hins vegar verið vakin á slaginu átta við hamarshögg ,sem undir er sungið ,glöðum rómi hin skemmtilegustu lög með textum sem ég í mínum heimóttarskap,kann engin skil á.Hef komist að því að þessi elskulegi morgunhani er pólskur drengur sem endurbyggir skúr nágranna míns..Það eru allir að byggja svo sem..það sem mér fynnst hins vegar svo smart er þessi mikla vinnugleði sem snáðinn hefur til að bera.Þótt rigni og vinnudagurinn fari allt í 12 tíma þá syngur hann samt!Þetta gleður mitt gamla hjarta því maður man tímana tvenna í sveitinni í gamla daga...Af okkur hér í Árbænum er annars allt þetta sama,ég á að senda lömb í hús eftir helgi svo enn þarf maður að leika manninn með ljáinn!!Allt klikkað í vinnunni og sem sagt sami grautur í sömuskál.....Vona að þið sem lesið séuð öll nokkuð góð elskur...bestu kv. þar til síðar.... 

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 16:31:25 / olamey

einkennilegt manni....

halló þið sem skoðið síðuna þessa!Þá er seinni leit yfirstaðin að sinni og alveg er´það einkennilegt að himnafaðirinn skuli láta þetta yfir okkur ganga þar norður frá,blindaþoka líkt og í fyrri leit.Raunar fóru ekki aðrir á fjall en mitt duglega fólk og mesta furða hvað niður kom af fé....Bestu þakkir oll somul án ykkar væri ég ekki upp á marga fiska...það er náttúrlega ómetanlegt að eiga þvílíkt fólk að...Ég hef annars verið lot að blogga,það er nú allt svipað  hjá okkur,sonna hver dagurinn oðrum líkur..Nú finnst mér kalt og haustlegt,enda að verða áliðið garðurinn og gangstétin hér er þakið fallandi laufbloðum,berin frosin og fuglarnir farnir að sníkja brauð...þetta er nú svona ,hver árstíð fylgir annarri eftir,já og nú er herinn farinn,einungis einmana kakkalakkar og ruslið eftir,við eigum það til minningar þó alltaf!!Annars vona ég að bjorgunarþyrlumál leysist fljótt og vel,sjómennirnir okkar þurfa á því að halda því senn fer vetur í hond með rysjóttri tíð.....segi ykkur af mér ef eitthvað markvert skeður,vona að allir séu  kátir í sinni......

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 20:16:08 / olamey

og aldrei það kemur til baka.....

Þá rann hann upp þessi dagur sem ég og aðrir antivirkjunnarsinnar hofum helst ekki viljað hugsa um,en hvað um það ,nú erþetta allt að gerast,í þessu máli mun græðgin og skammsýnin ráða ferðinni eins og svo mjog tíðkast nú um stundir...Get ekki að því gert að leiða hugann a´því stundum ,hvort þetta s´e yfir hofuð í valdi þeirra sem nú sitja við vold...Málið er að allt undir sólinni sem lífsanda dregur á sinn tíma og deyr og að lokum...en jorðin er margra kynslóða...svo þetta skemmdarverk er það sem við gefum bornum okkar,barnabornum,barnabarna ...osfrv!!!OG ég held að alveg hafi gleymst að fá leyfi þeirra fyrir þessum frantíðarspjollum1!Já elskur mér er heitt í hamsi..annars allt gott hér á bæ,ÓLa undirbýr norðurferð á morgun,heyrði að norðan í dag ,fúlt veður þv´i er ver en gestirnir mínir Ella og Halli sátu þar í sús og dús með heimamonnum....kannski smá blogg á morgun fyrir brottferð...blessi ykkur þar til...

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 18:35:22 / olamey

að flytja fjoll...

Skammaðist mín fyrir þreytuna og letina í gærkvold,horfandi á gonguna miklu niður Laugaveg,fannst ég alveg vera lúserinn ever að vera ekki þarna..Mjog merkilegt að fylgjast með þessari ferð Ómars gegn um allt þetta Kárahnújkamál..Þarna fer nefnilega maður sem er búin er að stunda afar vísindalegar rannsóknir ,í byrjun sem blaðamaður og síðar af sínum alkunna áhuga sem maðurinn Ómar.Það er svo sem ekkert leindarmál að ég hef verið og er gersamlaga andsnúin þessari virkjun og tek því sannarlega með fognuði undir boðskap þessarar gongu og tek svo sannarlega ofan minn hatt fyrir Ómari....Hjá okkur var dagurinn svipaður bræðrum sínum er áður runnu hjá,Inga mín og snúður sóttu mig til vinnu og heim komin fór ég að búa smá í haginn fyrir komandi helgi,því nú skal reyna að smala vel í seinni leit...Spáð er kólnnandi,máski fennir í fjoll og þá léttir á fjallaklifri hjá monnum...Kem inn ef eitthvaðsniðugt gerist hjá Ólu og co...Þar til góðar kv. úr Árbænum...

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 22:28:18 / olamey

að vera eða vera ekki.....

það er nú svo að flestu er við tokum okkur fyrir hendur í lífinu fylgir nokkur ábyrgð ég man þá tíð að ég ..og orugglega margir aðrir,sátu yfir dagbókinni >sem oftar en ekki var nauða ómerkileg stílabók<og svo skráði maður inn tíðindi dagsins.Það kom nú svo sem fyrir að skrifaðar voru hugrenningar sem ekki voru ætlaðar oðrum,enda voru þessi skrif mín fyeie sjálfa mig.Hins vegar er það svo með blessaðar bloggsíðurna að séu þær ekki læstar ,þá getur hver sem er lesið ...Það hlýtur þess vegna að vera einfalt að það sem folk ritar sé það sem í huga og hjarta býr og það sem ALLIR eiga að sjá!!Ekki meira um það...Af okkur er allt gott,mikil vinna á minni vegna veikinda á mínum vinnustað,ég er eins og orugglega allir aðrir gloð yfir þessari blíðu sem ríkt hefur að undanfornu,sannarlegur sumarauki það.Norðan að er allt gott,nú fá mínir kallar sennilega heimsókn á morgun og verð glaðir yfir því ,aðsjálfsogðu...Ég óska gestunum vitanlega góðrar ferðar og notalegrar dvalar,ég vona svo að þið sem þessa færslu lesið séuð barasta undurhress og ´fín....góða nótt vinir mínir...

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5